Umsagnir
Ég naut þeirrar ánægju að fara á styrkingarnámskeið hjá Guðjóni og þó ég segi sjálfur frá þá er ég kominn með nokkuð gott þol fyrir sjálfstyrkingarnámskeiðum.
Það sem Guðjóni tókst að gera á nokkrum kvöldum var að lyfta vanmati sem ég hafði á sjálfum mér uppí eðlilegt sjálfsmat, sem síðan hefur leitt til að ég fór að framkvæma á skömmum tíma hluti sem ég treysti mér ekki í eða ætlaði að gera seinna.
Þeir hlutir sem ég vatt mér í á nokkrum vikum eftir námskeið en hafði ekki treyst mér í voru að:
Hlaupa hálfmaraþon, klífa hæsta fjall Íslands og læra atvinnuköfun.
Nokkuð góður árangur frá einu námskeiði.Konan mín harðbannaði mér að fara á annað námskeið hjá Guðjóni því hún er hrædd um að þá fari ég til tunglsins.
Takk fyrir frábæra uppbyggingu og jákvæðni Guðjón minn.
Jón Alexander Elíasson
I.C.R.C Vímuefnaráðgjafi P.A.D.I Köfunarkennari
Umsögn
Það eru forréttindi að fá að hitta Guðjón, hann er jákvæður hress opinn og leiðir mann áfram á jákvæðan og kærleiksríkan hátt. Hann er þeim kostum búinn að geta hjálpað fólki að sjá það jákvæða í eigin fari og umhverfi og hjálpað fólki að finna einfalda leið til að njóta sín og hæfileika sinna.
Vandamál eru ekki til í hans orðabók einungis tækifæri sem þarf að vinna úr á mismunandi hátt og hann er fljótur að sjá hvað virkar best fyrir hvern og einn. Kærleikskveðjur. Katrín Sigurðardóttir Yogakennari/Ropeyogakennari.
Umsögn
Ég kynntist Guðjóni fyrir rúmum 2 árum. Þá var ég komin í andlegt og líkamlegt þrot, engin sjálfsvirðing, þunglynd og ekki hæf til að takast á við lífið. Guðjón hefur hjálpað mér að komast á beinu brautina aftur. Sjálfsvirðingin og öll lífsviðhorf hafa breyst . Mér líður vel í dag og gengur vel að takast á við lífið eins og það er.
Takk fyrir Guðjón minn
Inga Mæja Deildarstjóri Korpukoti
Umsögn
Guðjón opnaði augu mín fyrir ýmsu sem að ég hafði ekki geta horfst í augu við áður. Þú færð aðstoð til þess að breyta lífi þínu ef að þú vilt takast á við sjálfan þig.
Ég get hiklaust mælt með Guðjóni.
Sveinn Jónsson
Framkvæmdarstjóri Girðis
Umsögn
Það er öllum hollt að skoða sitt innra sjálft og vaxa og breytast til hins betra, Guðjón hefur hjálpað mér mjög mikið, bæði í starfi og eins í mínu einkalífi. Stundum þarf maður að taka eitt skref afturábak til að komast af stað áfram veginn.
Ég gef Guðjóni mín bestu meðmæli og þakka honum fyrir alla hjálpina
Ásgeir H. Ásgeirsson
Blikaási 15 Hafnarfirði |