Um jóga

Margir iðka jóga til að styrkja líkaman og fegra, aðrir til að fá hjálp við ákveðnum kvillum, svo sem spennu eða bakveiki, enn aðrir til að öðlast þá lífsfyllingu sem þeir þrá. Hver sem ástæðan er þá eru jógafræðinn ákveðin aðferð eða verkfæri sem gerir iðkendum kleift að ná takmarki sínu og enn lengra.
 
Ekki er hægt að skilja þessi fræði til fullnustu nema með því að iðka þau. Í fyrstu viðrðast þau aðeins ákveðið æfingakerfi og undarlegar stellingar, sem grenna líkaman og styrkja, en þegar farið er að stunda jóga að einhverju marki koma aðrir kostir í ljós.
 
Einstaklingurinn finnur fyrir mikilli breytingu hið innra, skilningur eykst og mat á lífsgæðum breytist  með reglulegri ástundun, hann öðlast smátt og smátt skilning á innri gerð sinni og þekkingu  á sjálfum sér, sem er einmitt meginkjarni jógafræðanna, leitin sem allir stunda meðvitað eða ómeðvitað og leiðir til þess þroskast er hver og einn stefnir að.
 
Ef hægt er að ná valdi á huga og hugsunum eru möguleikarnir nær takmarkalausir , eina hindrunin er þá eigið vanmat og hleypidómar sem hver og einn verður að kljást við.
 

Könnun

Telur þú þig hamingjusama(nn)
 

Gestir

Það er 1 gestur á síðunni núna